Regnboginn, fyrir sjálfstæði Íslands og sjálfbæra þróun, bauð fram lista við síðustu alþingiskosningar. Regnboginn, sem er regnhlífarsamtök, bauð fram undir merkjum sjálfstæðis og fullveldis, sjálfbærrar þróunar, jafnréttis, bættra lífskjara almennings, mannréttinda og félagshyggju.
Rödd fulltrúa Regnbogans heyrðist glöggt í aðdraganda kosninganna og mun vonandi hafa haft áhrif á umræðuna framundan, þótt ekki næðist að koma fulltrúa framboðsins á þing að þessu sinni.
Á þessari síðu eru upplýsingar um Regnbogann, stefnu hans og fólkið sem starfar undir merkjum Regnbogans.
Netfang Regnbogans er: regnboginn@regnboginn.is
Hér er kosningabæklingur Regnbogans og má hlaða honum niður eða skoða og prenta út eftir þörfum.

